Ætla að henda inn nokkrum punktum... ooooof langt síðan það hefur eitthvað heyrst í mér á þessarri síðu...

... kláraði prófin 6. maí og gekk ótrúlega vel... engin einkunn undir 8 og hæsta var 9,5...
... er byrjuð að vinna í 80% vinnu og er bara á hjúkkuvöktum, ótrúlega spennandi

... var að koma frá Mývatni, en ég gaf mínum heittelskaða eina nótt á hóteli... var ferlega næs...

... aaaallt að gerast á Akureyri... komnar þrjár nýjar fatabúðir!!!
... tengdamamma mín kom mér á óvart um miðjan maí og klippti dóttur mína, og hún sko tók allt hárið... hver elskar ekki tengdó??

... er búin að panta sumarbústað á Laugarvatni í júli og þið eruð allar velkomnar í heimsókn

... hey og já ég er í fríi þessa helgi sem á að fara til telmu...

... þarf örugglega að koma suður bráðlega til að kaupa mér föt fyrir 16.!! Eru allir komnir með outfit??
... vinkona mín gifti sig óvænt um daginn og það var held ég það rómantískasta sem ég hef upplifað. Hey, þetta er s.s. Helga Kristín frá Norðfirði...

... get ekki beðið eftir að hitta ykkur allar í júní, það verður svoooo gaman. Er reyndar að vinna þessa helgi en ætla að reyna að redda því...
... kiss og knús til ykkar allra...
Halldóra
Ps. hver vill gista hjá mér???